Upprennandi lestrarhestar í Leikskólanum Klettaborg |
Í leiðinni er minnt á bókasafnið og hlutverk þess.
Hugmyndin er sótt til Borgarbókasafns Reykjavíkur en einnig hefur verkefnið verið prófað í leikskólum í Reykjanesbæ með góðum árangri.
Sýningin um Pourquoi-Pas? – strandið verður opin alla daga í sumar á milli kl. 13 og 18 og tekur það fyrirkomulag gildi á morgun, þann 1. júní. Sýningin er í Tjernihúsi, 120 ára gömlu pakkhúsi í Englendingavík. Sýningin var opnuð s.l. haust í tilefni af því að þá voru liðin 70 ár síðan rannsóknaskipið fræga Pourquoi-pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum. Það var þann 16. september árið 1936 sem þetta merkilega skip leiðangursstjórans Jean-Baptiste Charcot steytti á skerinu Hnokka og sökk. Fjörutíu meðlimir skipshafnarinnar fórust, og einungis einn komst lífs af.
Í kjölfar viljayfirlýsingar menningarmálanefnda Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar um samstarf á sviði menningarmála, hafa
Ársgjald ákvarðast af gjaldskrá bókasafnins í því sveitarfélagi þar sem viðskiptavinurinn á lögheimili. Útlánagjöld, sekt og önnur gjöld miðast við það bókasafn sem notað er hverju sinni.
Vonast starfsfólk bókasafnanna til þess að þessi aukna þjónusta falli í góðan jarðveg og samstarfið leiði af sér fleiri samstarfsfleti í framtíðinni.
Ný listaverk hafa bæst við eign Listasafnsins. Þau eru gjöf frá listamanninum Páli Guðmundssyni á Húsafelli eftir sýningu sem hann hélt í Safnahúsi Borgarfjarðar á síðasta ári. Listaverkin heita Alsherjargoðinn sem er pastelmynd unnin árið 1982 og er af Sveinbirni Beinteinssyni og Myndheimur- Til minningar um Einar Ingimundarson sem eru fimm verk unnin í líparít árið 2006.
Þessi verk er mjög dýrmæt fyrir safnið því bæði er Páll frábær listamaður og með þeim heldur hann minningu tveggja borgfirskra sómamanna á lofti.
Franskt leikhús. Mitt á milli brúðuleiks og hefðbundins leikhúss liggur TURAK sem sumir nefna "víðavangsleikhús". Höfundur og leikstjóri er Michel Laubu. Sýningin er á vegum Alliance Francaise og er í tengslum við frönsku menningarhátíðina, Pourquoi Pas?- franskt vor á Íslandi.
Sýningin er ætluð fyrir alla aldurshópa og er ókeypis aðgangur.
Dagana 20.-23. apríl verður dagskrá á vegum Safnahúss Borgarfjarðar og Landnámsseturs Íslands í tengslum við menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi.
Sýningin Pourquoi Pas? - strandið sem er í Tjernihúsi í Englendingarvík verður opin á föstudeginum kl. 18.00-21.00 og á laugardeginum og sunnudeginum frá kl. 14.00-18.00.
Á laugardeginum 21. apríl kl. 14.00 er sérstök dagskrá með ávörpum, upplestri, tónlistarflutningi og kaffiveitingum.
Mánudagskvöldið 23. apríl kl. 20.00 verður franski brúðuleikhúshópurinn Turak með sýningu í Landnámssetrinu.
Í tilefni 140 ára verslunarafmælis Borgarness þann 22. mars er í Safnahúsinu sýning á skjölum, myndum og munum sem tengjast sögu verslunar í Borgarnesi.
Einnig er sýnd kvikmynd frá 125 ára hátíðarhöldunum.
Safnahúsið er opið frá kl. 13-18 alla virka daga nema þriðjudaga og fimmtudaga er opið frá kl. 13-20.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Samkvæmt tölfræði þeirri er finna má á þjónustuvef Landskerfis bókasafna kemur fram að heildarútlán á Héraðsbókasafni Borgarfjarðar á síðasta ári voru 18.198. Það er að segja lán á þeim eintökum sem skráð hafa verið í Gegni.
Í ljósmyndasafni Héraðsskjalasafnsins eru skráðar um 5530 ljósmyndir. Flestar myndirnar eru af fólki og þar á meðal þessi mynd sem sýnir sundkennslu í Stafholtstungum árið 1929.
Við sendum öllum okkar bestu óskir um farsælt komandi ár með þökk fyrir hið liðna.
Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar.