Upprennandi lestrarhestar í Leikskólanum Klettaborg
Í marsmánuði síðastliðnum hleypti Héraðsbókasafn Borgarfjarðar, í góðri samvinnu við Leikskólann Klettaborg, af stað tilraunaverkefninu ,,Bókakoffort handa leikskólabörnum”.  Markmið verkefnisins er að auka aðgengi barna á leikskólaaldri og foreldra þeirra að bókum og hvetja foreldra til að lesa fyrir börn sín. 

Í leiðinni er minnt á bókasafnið og hlutverk þess.

Hugmyndin er sótt til Borgarbókasafns Reykjavíkur en einnig hefur verkefnið verið prófað í leikskólum í Reykjanesbæ með góðum árangri. 

 

Framkvæmdin var með þeim hætti að starfsmenn Klettaborgar komu á bókasafnið og völdu bækur ofan í bókakoffort, sem í þessu tilfelli er marglitur plastkassi.  Koffortið hefur síðan flakkað um deildir leikskólans og hverju barni gefinn kostur á að velja sér eina til tvær bækur í senn til að taka með heim og hafa í vikutíma.  Skemmst er frá því að segja að bókakoffortinu hefur verið afskaplega vel tekið, bæði af börnum og foreldrum þeirra. 

Með það góða veganesti í farteskinu er stefnan sett á aukna útbreiðslu verkefnisins og vonandi verða bókakoffort á vegum Héraðsbókasafnsins sem víðast í leikskólum Borgarbyggðar næsta vetur.

 

 

Categories:

Tags:

Comments are closed