Guðmundur Sigursson opnaði sýningu í Safnahúsinu þann 17. maí sl. og nú eru síðastu dagar sýningarinnar. Hann mun verða staddur í Safnahúsinu laugardaginn 31.maí og tekur á móti gestum og áhugasömum milli kl. 13.00 og 15:00.
Á tímabilinu 6. júní- 1. sept breytist opnunartími í Safnahúsi Borgarfjarðar. Ekki verður opið til klukkan 20 á þriðjudögum og fimmtudögum eins og verið hefur, heldur opið alla virka daga frá 13-18 á ofangreindu tímabili.
Vonumst við til þess að þessi breyting komi sér ekki illa fyrir þá sem nýtt hafa sér kvöldopnunina sem mest. Benda má einnig á skilalúgu sem staðsett er á þeirri hlið hússins sem snýr í átt að húsi Sýslumanns.
Vert er að geta þess að þann 7. júní opnar á neðri hæð Safnahúss sýningin Börn í 100 ár á vegum Byggðasafns Borgarfjaðrar. Sú sýning verður opin alla daga vikunnar frá 13-18 og eftir samkomulagi á öðrum tímum fyrir hópa.
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður sýningin Börn í 100 ár ekki opin sunnudaginn 25.maí eins og auglýst var. Sýningin er enn í vinnslu og opnar fyrir almenning laugardaginn 7.júní.
Biðjumst velvirðingar ef þetta veldur einhverjum ónæði.
Þessar ungu stúlkur voru í hópi barna úr Lindaskóla í Kópavogi sem var á ferð um Borgarfjörð og heimsóttu m.a. Safnahúsið.
Nokkrir nemendur í myndmennt úr Grunnskólanum í Borgarnesi komu ásamt kennara sínum til að skoða málverkasýningu Guðmundar Sigurðssonar fyrrverandi skólastjóra. Sýningunni, sem ber nafnið „Finndu mig í fjöru“ lýkur 4. júní.
Guðmundur Sigurðsson opnar sína 13.einkasýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar þann 17.maí kl. 14:00. Allir velkomnir
Sýningin verður opin alla virka daga frá 13:00-18:00 og þriðjudaga og fimmtudaga til 20:00. Sýningin stendur yfir til 4. júní.
Michail Sikorski Konsúll við hlið bókagjafarinnar. |
Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Ástarljóð
Mig langar að semja ástarljóð eitt
sem að eilífu lifir í hjarta
og ekki freistar mín annað neitt
en að yrkja til landsins míns bjarta.
Það lýsir með regnboga leiðan dag
svo ljómi af himinsins boga.
Aldrei mun hverfa hið eilífa lag
sem Íslandsins tendraði loga.
Þú, Ísafold, skapaðir eld minn og sál
og allt sem ég dái og er.
Þú veittir mér ljóð og þú veittir mér mál
og visku sem aldregi þver.
Ó, Frón, þú ert allt sem fallegast er,
um fjöll þín mig ávallt mun dreyma.
Minn anda og dug ég eftirlæt þér.
Ég ann þér, því hér á ég heima.
Vorkyrrð
hvítur himinn kyrrðar
hvíslar haf
fjallsins tvífari
fyllir hug
rofin aðeins ró
rjómahvítum fjarska
líf í báru blá
bærir ljós
Elín Elísabet með verðlaun sín. |
Sumardagurinn fyrsti er hátíðisdagur í hugum flestra og ekki síst barnanna. Safnahús Borgarfjarðar helgar börnum næstu sýningu sína sem opnar í maí. Hún nefnist „Börn í hundrað ár“ og verður þar fjallað um börn og umhverfi þeirra á myndrænan og nýstálegan hátt. Viljum við hvetja sem flesta að koma og upplifa sýninguna sem verður opin frá kl. 13-18 alla daga í sumar.