Safnahús er eitt menningarhúsanna á nýrri vefsíðu verkefnisins List fyrir alla. Þar er m.a. kynnt sýningin Börn í 100 ár sem er um börn og fyrir börn.

Föstudaginn 3. september var opnuð ný upplýsingasíða um fjölþætta miðlun menningar til barna á vegum verkefnisins. List fyrir alla er á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt. Sýningin Börn í 100 ár  er hluti þess menningarframboðs sem finna má á nýju vefsíðunni. Við hönnun hennar var sérstaklega hugað að þörfum barna og ungmenna og hefur hún reynst afar góð fyrir móttöku skólahópa.

Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um menningarstefnu árið 2013 og var það í fyrsta skipti sem samþykkt var sérstök stefna íslenska ríkisins á sviði lista og menningararfs.  Stefnan snýr að aðkomu ríkisins að þeim málaflokkum.  Í henni eru fjórir meginþættir: Sköpun og þátttaka í menningarlífi, áhersla á gott aðgengi að listum og menningararfi, mikilvægi samvinnu stjórnvalda við aðila sem starfa á sviði menningar og loks mikilvægi þátttöku barna og ungmenna í menningarlífinu. Í menningarstefnu Borgarbyggðar má finna sama tón um áherslur á menningarstarf fyrir börn. Grunnsýningar Safnahúss taka mið af því og eru því báðar einkar vel til þess fallnar að taka á móti börnum og ungmennum. Einnig má nefna samstarfsverkefni Safnahúss með Tónlistarskóla Borgarfjarðar sem ber vinnuheitið Að vera skáld og skapa.

Categories:

Tags:

Comments are closed