Helstu viðburðir á næstunni eru þeir að fimmtudaginn 13. febrúar kl. 10.00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafnsins, þar sem gestir aðstoða safnið við greiningu ljósmynda.

Sama dag kl. 19.30 flytur Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur fyrirlestur um veiðinýtingu, líffræði og framtíð laxastofna í Borgarfirði. Fyrirlesturinn tekur um klukkustund og að honum loknum verður kaffispjall.

Laugardaginn 15. febrúar kl. 13.00 til 15.00 verður laugardagsopnun hjá okkur á myndlistarsýninguna Flæði, en sú sýning hefur hlotið afar góðar móttökur gesta. Sýningin stendur til 22. febrúar, en þann dag verður einnig opið kl. 13.00 til 15.00.

Næsti viðburður hjá okkur eftir þetta verður svo erindi sem Ebba Guðný Guðmundsdóttir heldur fyrir foreldra ungbarna á bókasafninu fimmtudagsmorguninn 5. mars kl. 10.30. Þar fjallar Ebba um næringu ungbarna

Tvær ritsmiðjur verða í marsmánuði og er það Sunna Dís Másdóttir sem annast þær. Sjá heildarlista um viðburði í húsinu með því að smella hér og fylgist nánar með á heimasíðu okkar www.safnahus.is og á Facebook: Safnahús Borgarfjarðar.

Birt með fyrirvara um breytingar.  Ljósmynd (GJ): Langá á Mýrum.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed