Laugardaginn 28.nóvember opnaði Snjólaug Guðmundsdóttir sýningu í Safnahúsi þar sem sýndur er vefnaður og flóki.  Sýningin ber nafnið ”Af fingrum fram” og hluti hennar er af sýningu sem Snjólaug hélt á Blönduósi árið 2008  til vors 2009 og bar sama nafn. Nokkru hefur þó verið bætt við sýninguna sem haldin er í Safnahúsinu nú.

Snjólaugu þarf vart að kynna fyrir íbúum héraðsins þar sem hún hefur um langt skeið unnið hina ýmsu gripi úr íslenskri ull og öðrum náttúruefnum. Hún er menntaður vefnaðarkennari frá Myndlistar- og handíðarskólanum og kenndi meðal annars vefnað í 9 ár í Húsmæðraskólanum á Varmalandi. Sú listsköpun sem Snjólaug fæst við hefur að mestu verið byggð á menntun hennar og hún rekur nú listagalleríið Sólu á Brúarlandi á Mýrum.

 

Ljósmynd: Snjólaug Guðmundsdóttir við opnun sýningarinnar.

Categories:

Tags:

Comments are closed