Sigríður Beinteinsdóttir frá Grafardal í Hvalfjarðarstrandarhreppi (nú Hvalfjarðarsveit) lést í vikunni, á 96. aldursári.  Sigríður var fjórða í röð átta systkina sem öll eru nú látin.  Systkinin öll voru skáldmælt og út hafa komið ljóðabækur eftir sex þeirra. Í bókinni Raddir dalsins má finna kveðskap þeirra allra. 

Einsog kunnugt er, var á Degi íslenskrar tungu opnuð sýning á verkum Halldóru B. Björnsson, systur Sigríðar, í tilefni af aldarafmæli hennar.  Á sýningunni sem stendur enn má líka finna bækur systkina hennar.  Sigríður, sem bjó lengst ævi sinnar á Hávarsstöðum í Leirársveit (tilheyrir nú Hvalfjarðarsveit) ásamt Jóni Magnússyni manni sínum, sendi frá sér tvær ljóðabækur; Komið af fjöllum kom út árið 1984 og Um fjöll og dali árið 1990.  Hörpuútgáfan á Akranesi gaf bækurnar út eins og raunar fleiri bækur systkinanna.  

Á nýju bókamerki Safnahúss Borgarfjarðar sem Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður hannaði og prentað var fyrst í lok síðasta árs, er eftirfarandi vísa Sigríðar birt, en vísuna orti hún um bókina Samastað í tilverunni eftir Málfríði Einarsdóttur frá Munaðarnesi. 

 

Sjaldan betri bók ég fékk

bjástur fólksins skildi

í anda með þér götur gekk

gjarnan þakka vildi.

 

Við andlát systur sinnar Halldóru, orti Sigríður fallegt kvæði sem heitir Systurkveðja og  birt var í tímaritinu 19.júní 19.tbl árið 1969 bls 11. Smellið hér til að lesa kvæðið.

 

 

Aðstandendum öllum er vottuð samúð vegna fráfalls Sigríðar Beinteinsdóttur.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed