Næstkomandi laugardag kl. 16.00 opnar ungur Borgfirðingur sýningu í sal Listasafns í Safnahúsi. Þetta er Bjarni Helgason sem er grafískur hönnuður með meistaragráðu  í „Media Arts“  frá Kent Institute of Art & Design í Bretlandi.

Bjarni er ættaður frá Laugalandi í Stafholtstungum, alnafni afa síns sem þar býr.  Á slóðinni  http://bjaddni.com/borgarnes/  má sjá frekari upplýsingar um Bjarna og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að koma og njóta verka hans við þetta eða síðara tækifæri.

Á sýningunni eru 6 prentuð verk í 1.5 x 1 m ljósakössum. Verkin eru unnin á síðustu árum, þau elstu frá árinu 2004 og þau yngstu frá þessu ári. Sýningin verður opin næstu þrjár vikurnar á opnunartíma Safnahúss, sjá www.safnahus.is  – ALLIR VELKOMNIR.

 

Frétt með mynd er af einu verka Bjarna.

 

 

Categories:

Tags:

Comments are closed