Frá ljóðasýningunni í fyrra
Þann 14. nóvember  n.k  verður í tilefni af degi íslenskrar tungu þann 16. nóv. opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar ljóðasýning nemenda fimmtu bekkja í grunnskólunum í nágrenninu.  Þetta er í fjórða sinn sem Safnahús fer þess á leit við kennara fimmtu bekkja að þeir leggi nemendum sínum fyrir það verkefni að yrkja ljóð og jafnvel myndskreyta það.  Afraksturinn verður svo til sýnis í sal listasafns í Safnahúsinu fram að jólum. 

Á opnuninni gefst þátttakendum og fjölskyldum þeirra tækifæri að skoða verk sín,  farið verður í leiki og boðið uppá veitingar.  Til að gera leikjadagskrána sem besta úr garði gerða, hafa verið kallaðar til sérstakar leik-konur Safnahús, systurnar Gréta Sigríður og Elín Elísabet Einarsdætur sem starfað hafa í Safnahúsi að sumri til við afleysingar og sýningarvörslu. 

 

Júlíana Jónsdóttir
Við sama tækifæri verður skáldkonunnar Júlíönu Jónsdóttir minnst en í ár eru liðin 170 ár frá fæðingu hennar.  Júlíana var fædd á bænum Búrfelli í Hálsasveit en ólst að mestu upp á Rauðsgili í sömu sveit fram að fermingaraldri.  Hún bjó víða eftir það, meðal annars í Akureyjum og í Stykkishólmi þar sem frumflutt var leikrit hennar Víg Kjartans  Ólafssonar en Júlíana lék þar hlutverk Guðrúnar Ósvífursdóttur.  Í bókmenntasögunni er Júlíana þó þekktari fyrir ljóðabók sína Stúlku sem út kom 1876 en sú bók er fyrsta ljóðabók eftir konu á Íslandi.  Júlíana hvarf af landi brott til Vesturheims  í kringum 1885 og dvaldi þar til æviloka en hún lést árið 1917 eða 1918 en heimildir greinir á um það.  Skömmu fyrir andlátið leit seinni ljóðabók hennar dagsins ljós og bar hún heitið Hagalagðar.

Það er Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður sem hefur umsjón með dagskránni, sem hefst kl. 16:30 og eru allir hjartanlega velkomnir.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed