Vefurinn Skjaladagur.is

hefur verið opnaður í tilefni norræna skjaladagsins sem verður 8. nóv.  n.k. Áhugaverð slóð fyrir þá sem hafa gaman af sögulegum fróðleik.

Tilgangur norræna skjaladagsins er  að kynna starfsemi skjalasafnanna í landinu og leggja jafnframt áherslu á sameiginlega þætti í sögu Norðurlandanna. Að þessu sinni er þemað “gleymdir atburðir”. Hugsunin er m.a. sú að rifja upp atburði í sögu þjóðarinnar sem ekki eru í hávegum hafðir þessa stundina eða hafa þokað nokkuð til hliðar.

 

Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar á þarna m.a. síðu með fróðleik um Guðmund Kristjánsson vinnumann sem keypti sér leyfisbréf til lausamennsku árið 1894.

 

10.-17. nóvember verður Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar með kynningu á starfsemi safnsins og sýningu á skjölum og myndum sem tengjast gleymdum atburðum.

 

 Ljósmyndari: Guðrún Jónsdóttir

Categories:

Tags:

Comments are closed