Næstkomandi föstudag verður hinn árlegi bókasafnsdagur haldin hátíðilegur á bókasöfnum landsins en dagurinn er einnig alþjóðadagur læsis. Markmið dagsins er sem fyrr tvíþætt, annarsvegar að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu og hinsvegar að vera dagur starfsmanna safnanna.
Íbúar og aðrir á starfssvæði Héraðsbókasafns Borgarfjarðar eru hvattir til að líta við á bókasafnið sitt þennan dag sem og aðra daga og kynna sér þjónustu safnsins og Safnahússins í heild en í tilefni dagsins verður boðið upp á konfekt.
Í ár er bókasafnsdagurinn tileinkaður lýðræði og hlutverki bókasafna í lýðræðissamfélögum. Í störfum safna birtist málefnið meðal annars í tengslum við bóklæsi, upplýsingalæsi, aðgengi að upplýsingum og efni, þekkingarmiðlun, jöfnu aðgengi og aðstöðu fyrir alla. Bókasöfn eru hluti af lýðræðissamfélaginu.
Comments are closed