|
Frá ljóðasýningunni í fyrra |
Þann 14. nóvember n.k verður í tilefni af degi íslenskrar tungu þann 16. nóv. opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar ljóðasýning nemenda fimmtu bekkja í grunnskólunum í nágrenninu. Þetta er í fjórða sinn sem Safnahús fer þess á leit við kennara fimmtu bekkja að þeir leggi nemendum sínum fyrir það verkefni að yrkja ljóð og jafnvel myndskreyta það. Afraksturinn verður svo til sýnis í sal listasafns í Safnahúsinu fram að jólum.
Á opnuninni gefst þátttakendum og fjölskyldum þeirra tækifæri að skoða verk sín, farið verður í leiki og boðið uppá veitingar. Til að gera leikjadagskrána sem besta úr garði gerða, hafa verið kallaðar til sérstakar leik-konur Safnahús, systurnar Gréta Sigríður og Elín Elísabet Einarsdætur sem starfað hafa í Safnahúsi að sumri til við afleysingar og sýningarvörslu.
|
Júlíana Jónsdóttir |
Við sama tækifæri verður skáldkonunnar Júlíönu Jónsdóttir minnst en í ár eru liðin 170 ár frá fæðingu hennar. Júlíana var fædd á bænum Búrfelli í Hálsasveit en ólst að mestu upp á Rauðsgili í sömu sveit fram að fermingaraldri. Hún bjó víða eftir það, meðal annars í Akureyjum og í Stykkishólmi þar sem frumflutt var leikrit hennar Víg Kjartans Ólafssonar en Júlíana lék þar hlutverk Guðrúnar Ósvífursdóttur. Í bókmenntasögunni er Júlíana þó þekktari fyrir ljóðabók sína Stúlku sem út kom 1876 en sú bók er fyrsta ljóðabók eftir konu á Íslandi. Júlíana hvarf af landi brott til Vesturheims í kringum 1885 og dvaldi þar til æviloka en hún lést árið 1917 eða 1918 en heimildir greinir á um það. Skömmu fyrir andlátið leit seinni ljóðabók hennar dagsins ljós og bar hún heitið Hagalagðar.
Það er Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður sem hefur umsjón með dagskránni, sem hefst kl. 16:30 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Comments are closed