Nýlega var auglýst eftir verkefnisstjóra hjá Safnahúsi og hefur Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir verið ráðin í starfið. Hún á að baki fjölbreytt nám og starf og er að ljúka MA námi í safnafræði við Háskóla Íslands, útskrifast með viðbótardiplóma þaðan í vor. Hún er einnig með MFA gráðu frá listaháskólanum Villa Arson í Frakklandi. Guðlaug er fædd og uppalin í Kjósinni, býr að ríkulegri tungumálakunnáttu og reynslu úr atvinnulífinu auk þess að vera starfandi myndlistarmaður og vön verkefnastjórn. Hún mun takast á við margbreytileg verkefni í Safnahúsi er snúa að safnkostinum og meðferð hans, en einnig annast önnur störf skv. starfslýsingu. Guðlaug mun hefja störf í júnímánuði næstkomandi og er hún boðin hjartanlega velkomin í starfsmannateymi Safnahúss.
Comments are closed