Stór hluti þátttakenda í sumarlestri 2009
Í sumar hafa duglegir krakkar á aldrinum 6-12 ára tekið þátt í sumarlestri á bókasafninu en þetta er í annað sinn sem Safnahúsið stendur fyrir verkefninu.  Í ár tóku 30 börn þátt og lásu þau ríflega 150 bækur.  Verkefninu lauk formlega í gær þegar haldin var sérstök uppskeruhátíð í Safnahúsinu sem heppnaðist með miklum ágætum. 

 

 Þar mættu þátttakendur í verkefninu ásamt nokkrum foreldrum og systkinum.  Öllum þátttakendum var veitt viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna, sex heppnir hlutu bókavinning, farið var í leiki og boðið uppá hressingu að þeim loknum.  Þá fengu allir þátttakendur glaðning frá Kaupþing banka og eru bankanum færðar bestu þakkir fyrir. 

 

Hér koma nokkrar myndir frá gærdeginum:

 

Allt til reiðu í keppni í boðhoppi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það fór enginn svangur frá Heiðari Lind, sumarstarfsmanni Safnahúss

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einbeitningin skein úr hverju andliti

Categories:

Tags:

Comments are closed