Í dag fagnar Þorsteinn Þorsteinsson lífefnafræðingur frá Húsafelli níræðisafmæli sínu. Þorsteinn er mörgum Borgfirðingum að góðu kunnur og hefur sinnt ýmsum fræðistörfum og ritað fjölmargar sérfræðigreinar í erlend tímarit og innlend. Eiginkona hans er Edda Emilsdóttir meinatæknir og eru börn þeirra fjögur: Ingibjörg, Björn, Þorsteinn og Margrét. Þorsteinn hefur verið ötull velgjörðarmaður safnanna, lagt þar inn efni og miðlað af yfirgripsmiklum fróðleik sínum. Jafnframt hefur hann lagt Sögufélagi Borgarfjarðar lið og skrifað greinar í Borgfirðingabók m.a. um ógleymanlegar persónur í héraði og starfshætti sem brátt eru að gleymast.
Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar óskar Þorsteini innilega til hamingju með tímamótin.
Myndatexti: Þorsteinn ásamt Ástríði systur sinni í heimsókn í Safnahúsi í september 2014. Mynd: Guðrún Jónsdóttir.
Comments are closed