Laugardaginn 11. janúar 2020 verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi fyrsta samsýning hópsins Flæðis. Í hópnum eru átta konur sem hittast reglulega og mála saman. Allar hafa þær bakgrunn úr Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Einnig hafa þær sótt námskeið erlendis jafnt sem innanlands hjá kennurum eins og Keith Hornblower, Ann Larsson Dahlin og Bridget Woods.

Hópurinn hefur heillast af vatnslitum og töfrum þeirra þegar litur og vatn flæða saman. Vatnslitir eru krefjandi miðill sem erfitt er að stjórna en glíman við þá leiðir mann að endalausum möguleikum. Efni sýningarinnar er eins og heiti hennar gefur til kynna, flæði vatns, lita og myndefnis.

Meirihluti hópsins hefur mikla tengingu við Borgarfjörðinn, ein býr þar og margar eiga sumarhús á svæðinu sem oft er uppspretta listrænna myndefna sem sést í mörgum verkum á sýningunni.  Konurnar í Flæði eru þessar:

Fríða Björg Eðvarðsdóttir
Guðrún Steinþórsdóttir
Rósa Traustadóttir
Sesselja Jónsdóttir
Sigríður Ásgeirsdóttir
Svanheiður Ingimundardóttir
Þorbjörg Kristinsdóttir
Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir

Eftir opnunardaginn er sýningin opin alla virka daga frá kl 13 til 18 og um helgar samkvæmt samkomulagi sem þá verður auglýst sérstaklega. Hún stendur til 18. febrúar.

Á ljósmyndinni eru í aftari röð f.v. Sesselja Jónsdóttir, Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir, Fríða Björg Eðvarðsdóttir, Þorbjörg Kristinsdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir. Fremri röð f.v.: Svanheiður Ingimundardóttir, Rósa Traustadóttir og Guðrún Steinþórsdóttir.  Myndina tók Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir.

Categories:

Tags:

Comments are closed