Sýningar í Safnahúsi eru opnar alla daga í sumar frá 13-17, en bókasafnið er opið alla virka daga frá 13-18. Sýningarnar í Safnahúsi eru þessar:
Börn í 100 ár – sýning sem byggist upp á ljósmyndum sem segja sögu Íslands á 20. öld út frá lífi barna í landinu á þessum tíma. Sýningin hentar frábærlega fyrir börn – á öllum aldri.
Sýning á ljósmyndum Þorsteins Jósepssonar frá Signýjarstöðum. Viðfangsefnið er mannlíf og staðir í Borgarfirði og á Mýrum fyrir miðja 20. öld.
Sýning um afburðamanninn sr. Magnús Andrésson á Gilsbakka.
Safnahús er á Bjarnarbraut 4-6, í gamla miðbæ Borgarness, rétt hjá Landnámssetri. Verið velkomin!
Comments are closed