Í fimmta sinn er efnt til til sumarlesturs í Safnahúsi. Sumarlesturinn er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og tímabilið er frá 10. júní – 10. ágúst. Markmiðið er að nemendur viðhaldi og þjálfi lestrarleiknina sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.  Verkefnið er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu.  Í ágúst verður svo haldin uppskeruhátíð sumarlestursins, en þá koma krakkarnir í Safnahús til leiks og skemmtunar og þiggja viðurkenningar og hressingu. 

Bókasafnið er opið alla virka daga frá 13-18, en auk þess eru sýningar í Safnahúsi opnar frá 13-17 alla daga, einnig hátíðis- og helgidaga.

 

Ljósmynd með frétt:  Krakkar kynna sér starfsemi bókasafnsins hjá Sævari Inga Jónssyni héraðsbókaverði. Mynd: GJ.

Categories:

Tags:

Comments are closed