Föstudaginn 30. júní kl. 16.00 opnar í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar þjóðbúningasýning á handverki  Margrétar Skúladóttur en hún hefur á síðastliðnum 17. árum saumað um 30 búninga og búnings hluta. Opnunarhátíðin stendur frá 16.00 – 18.00.

Margrét Skúladóttir hefur á síðustu tveimur áratugum starfað ötullega að ýmsu starfi tengt handverki og þjóðbúningahefð, var einn af stofnendum Þjóðbúningafélags Vestfjarða og setið í þjóðbúningaráði. Haldið námskeið í búningasaumi og komið að norrænu samstarfi handverksfólks á þessu sviði.

Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma Safnahússins. Sýninginn er unnin með styrk frá Safnaráði Íslands og stendur til 10. september nk.

 

Engin aðgangseyrir er á sýningar Safnahúsið árið 2023.

Tags:

Comments are closed