Birta Rán Björgvinsdóttir heldur nú sína fyrstu ljósmyndasýningu, í  sal Safnahúsi Borgarfjarðar, en sýningin var opnuð 7. Júní og stendur til loka júlí.

 

Þema sýningarinnar er  SJÁLFSMYND UNGLINGS, en Birta Rán er aðeins 16 ára gömul og nýútskrifuð úr 10. bekk Grunnskólans í Borgarnesi.

Undanfarin 2 ár hefur Birta Rán verið með mikla ljósmyndadellu og leggur vart frá sér myndavélina, nótt sem nýtan dag. Að vísu er ekki lengur hægt að kalla þetta dellu því Birta Rán hefur ákveðið að leggja ljósmyndum fyrir sig sem starf. Og mun hefja nám í ljósmyndun í Reykjavík á hausti komanda.

 

Einbeitni Birtu Ránar til að spjara sig á þessum vettvangi speglast í  að ofurselja sig þeirri kvöð að birta “Eina Mynd Á Dag” í 365 daga á  einum vinsælasta ljósmyndavef heims í dag (http://flickr.com/) Hún hefur nú þegar birt yfir 320 myndir í þessari seríu og á alls rúmlega 600 myndir á þessum ljósmyndavef.

 

Þess ber að geta að Birta Rán hefur fengið mikla hvatningu og lof frá ótal meðlimum á Flickr vefnum,  sem og öðrum sem skoðað hafa myndir hennar. Slóðin á vefsvæði Birtu Ránar er http://flickr.com/photos/birtarnb/

 

Líkt og sjá má á sýningunni þá eru viðfangsefni Birtu Ránar af mörgum toga, en þó  eru myndir af fólki þar  yfirgnæfandi. Þar sem fyrirsætur ekki eru alltaf til staðar hefur Birta Rán notað sjálfan sig sem slíka. Hún segir það vera bestu leiðina til að prufa sig áfram  og læra jafnframt á hvernig ljós og birta hefur áhrif á myndefnið.

 

Sýning Birtu hefur hlotið mjög góðar undirtektir gesta og verður eins og áður var sagt opin til loka júlímánaðar.

 

Ljósmyndin með fréttinni er eftir Birtu Rán og er af henni sjálfri.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed