Í fyrsta skipti efnir Héraðsbókasafn Borgarfjarðar til sumarlesturs fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. 

 

Tímabil sumarlesturs er frá 10.júní – 10. ágúst.

 

Markmiðið með verkefninu sem þreytt hefur verið víða um land með góðum árangri er að: Nemendur viðhaldi og þjálfi  lestrarleikni sem þau hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn. 

 

Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu frá og með 10. júní og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili. 

 

Þegar bók er aftur skilað á bókasafnið er stimplað við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars og einhverjir heppnir lestrarhestar hljóta vinning.

 

Öll börn geta gerst lánþegar  Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin.

 

Opið verður á bókasafninu í sumar alla virka daga frá kl.13-18.

 

Við hlökkum til að sjá sem flesta krakka á bókasafninu í sumar.

 

Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar

Categories:

Tags:

Comments are closed