Árlegt sagnakvöld Safnahúss verður að þessu sinni haldið fimmtudaginn 3. nóvember n.k. kl. 20.00. Dagskráin verður í senn fjölbreytt og borgfirsk.  Nokkrar nýjar og nýlegar bækur sem tengjast héraðinu með einum eða öðrum hætti verða kynntar auk þess sem tónlistin kemur við sögu.  Ari Sigvaldason mun kynna bókina Víst þeir sóttu sjóinn – Útgerðarsaga  Borgfirðinga.  Helgi Kristjánsson hefur skrifað endurminningar sínar frá Trönu og hafa þær fengið nafnið Í björtum Borgarfirði. Trönustrákur segir frá. Viðar Hreinsson segir frá bók sinni Bjarni Þorsteinsson. Eldhugi við ysta haf, og Kristín Á. Ólafsdóttir syngur nokkur þjóðlög í minningu þjóðlagasafnarans góða. Að lokum kynnir Bjarni Guðmundsson bók sína um Farmalinn: Alltaf er Farmall fremstur.  

Að venju er mikil gróska í útgáfu rita er tengjast héraðinu með einum eða öðrum hætti. Meðal þess sem nefna má í þessu sambandi er að Óskar Guðmundsson hefur skrifað ævisögu Þórhalls Bjarnasonar biskups sem um tíma var þingmaður Borgfirðinga, nefnist sú bók Brautryðjandinn.  Þriðja ljóðabók Bjarna Valtýs Guðjónssonar Döggin skær, lítur dagsins ljós innan tíðar og þá hefur Þorsteinn frá Hamri sent frá sér nýja ljóðabók sem nefnist Allt kom það nær, sem án efa á eftir að njóta hylli lesenda eins og fyrri verk hans. Kristín Thorlacius heldur áfram ötulu þýðingarstarfi sínu og Ævar Þór Benediktsson sendir frá sér sína aðra bók, nú bregður hann sér í gervi prófessors Ævars sem yngri kynslóðin þekkir vel úr Stundinni okkar.  Þá má þess einnig geta að 11. árgangur Borgfirðingabókar, ársrits Sögufélags Borgarfjarðar kom út fyrr á þessu ári en það hefur nú komið út samfellt frá árinu 2004. Tvö ungmennafélög í héraði eiga 100 ára afmæli á þessu ári, Dagrenning og Íslendingur. Bæði hafa þau látið taka saman ágrip af sögu sinni, Dagrenning birti sitt í aukablaði með Skessuhorni fyrr á árinu og Bjarni Guðmundsson hefur skrifað um Íslending í riti sem er að koma út.  

 

Sagnakvöldið verður að venju í sýningarsalnum (Börn í 100 ár) á neðri hæð Safnahúss. Að þessu sinnier það haldið í minningu þess mikla fræðaþular Kristleifs Þorsteinssonar, en í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu hans.

 

Ljósmynd: Bjarnarbraut 4-6 sem hýsir starfsemi Safnahúss/GJ.

 

 

Categories:

Tags:

Comments are closed