Laugardaginn 25. ágúst var opnuð listasýning í sal Listasafns Borgarness. Sýnd eru leirverk eftir mæðgurnar Ólöfu Erlu Bjarnadóttur og Kristínu Erlu Sigurðardóttur. Sýningin er styrkt af Menningarsjóði Vesturlands og er fyrsta samsýning þeirra mæðgna og tókst vel til, um 50 manns komu að líta á verkin þennan dag.

Sýningin verður opin alla virka daga til 12. september en þá verður sýningin sett upp á Akranesi. Gestur á sýningunni er Sigríður Erla Guðmundsdóttir sem kynnir verk sín úr íslenskum leir. 

Categories:

Tags:

Comments are closed