Byggðasafni Borgarfjarðar barst góð gjöf í júlí sl. þegar Gunnar Bernburg gaf orgel úr sinni eigu sem að öllum líkindum er upprunalega orgelið frá Borg á Mýrum. Kirkjan á Borg var byggð árið 1881 og strax árið 1887 var þetta stóra harmonium orgel keypt. Eitthvað hafa menn misreiknað stærð kirkjunnar eða orgelsins því það komst ekki fyrir á loftinu og þurfti að breyta loftinu. Orgelið var svo selt, sennilega stærðarinnar vegna, og endaði hjá forfeðrum Gunnars.

 Eggert Jóhannesson hornleikari eignaðist orgelið, en hann var í hljómsveit með Poul Otto Bernburg sem var afi áðurnefnds Gunnars. Orgelið var flutt að Eyrarbakka þar sem Eggert átti sumarhús og fór þaðan á sölu. Gunnar keypti þá gripinn því það var þá orðið forngripur og afi hans hafði sennilega æft og spilað á það með hljómsveit Eggerts. Orgelið er nú komið á heimaslóðir á ný og verður vel geymt á Byggðasafninu, við þökkum fyrir glæsilegan og vel með farinn grip.

Categories:

Tags:

Comments are closed