Nýlega bárust á Héraðsskjalasafnið tvær myndir, af hjónunum Elínu Jónsdóttur (1866-1952) og Þorsteini Hjálmssyni (1860-1915). Myndirnar eru dæmi um muni sem berast á söfnin, í þetta sinn til Héraðsskjalasafnsins þar sem um ljósmyndir er að ræða. Myndirnar eru í viðarrömmum, vel farnar og skýrar. Elín og Þorsteinn bjuggu sín búskaparár í Örnólfsdal í Þverárhlíð og á Hofsstöðum í Stafholtstungum og eignuðust þrjú börn sem upp komust, Árna, Hjálm og Jón.
Það var Magnús Jónasson, barnabarnabarn Elínar og Þorsteins sem gaf myndirnar af langafa sínum og langömmu á safnið.
Ljósmynd: GJ
Comments are closed