Þeir Gunnar Ólafsson fyrrv. skipstjóri og Sigvaldi Arason í Borgarnesi hafa að undanförnu gengist fyrir því að skipslíkön tengd útgerðarsögu Borgnesinga fari í eigu Byggðasafns Borgfirðinga í Safnahúsi. Í ágúst í fyrra komu þeir færandi hendi með Eldborgina sem var gerð út frá Borgarnesi í meira en tvo áratugi og á sér því mikilvægan sess í atvinnusögu héraðsins. Síðastliðinn föstudag var það svo Hvítáin sem kom í hús.

Þeir félagar hafa ekki gefist upp því næst verður það Hafborgin sem verið er að smíða líkan af og verður síðan færð heim í Borgarnes.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu Hvítárinnar og fór athöfnin fram á stjórnarfundi hjá Faxaflóahöfnum sem eru einn styrktaraðila verkefnisins.  Á myndinni frá vinstri: Sigvaldi Arason, Gunnar Ólafsson og kona hans Dýrleif Hallgrímsdóttir. 

 

Bæði líkönin sem komin eru verða höfð til sýnis á bæjarskrifstofunum næstu vikur. Hér má sjá nánari fróðleik um sögu Hvítárinnar.

 

Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir

 

Categories:

Tags:

Comments are closed