Fimmtudaginn 19. sept. kl. 17.30 verður opnuð ný sýning í Safnahúsi. Þar er sögð saga Hallsteins Sveinssonar (1903-1995), sem var mikill velgjörðarmaður safnanna.

 

Sýningin er sett upp í samvinnu við fjölskyldu Hallsteins og Ásmundarsafn. Hún mun standa fram til loka janúar og er fólk hvatt til að koma og kynna sér sögu þessa merka manns sem ekki hafði áhuga á veraldlegum auði en sýndi á ævikvöldi sínu einstaka rausn í garð síns heimahéraðs.

 

Skólastofnunum er sérstaklega bent á að notfæra sér sýninguna en boðið verður upp á fræðslu um hana fyrir börn á öllum aldri auk leiðsagnar fyrir fullorðna.

 

Hallsteinn var mörgum kunnur, ekki síst í listheiminum.  Lífsskoðanir hans voru á margan hátt áhugaverðar og líf hans samtvinnað merkum kafla í listasögu landsins. Í sýningunni er lögð áhersla á hugsjónir hans og persónuleika sem laðaði að sér marga af þekktustu myndlistarmönnum Íslands.  Meðal þess sem sjá má er hvernig þeir myndgerðu þennan hollvin sinn í teikningum, málverkum og höggmyndum.

Hallsteinn var fæddur í vestur Dölum en flutti ásamt foreldrum sínum í Eskiholt árið 1925. Hann stundaði nám í Íþróttaskólanum í Haukadal árið 1930, en var búsettur í Reykjavík frá 5. áratugnum. Þar starfaði hann sem smiður og handverksmaður, en var alla tíð mikill listunnandi, um gekkst listamenn mikið og rammaði inn mikið af verkum þeirra. Hann átti þegar fram liðu stundur mikið og merkilegt safn listaverka. Hallsteinn flutti í Borgarnes árið 1971 og gaf þá listasafn sitt þangað ásamt peningagjöfum. Hann bjó síðustu æviár sín á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi þar sem hann var einnig með smíðaverkstæði. Sýningin í Safnahúsi er sérstaklega styrkt af sveitarstjórn Borgarbyggðar sem þannig vottar minningu þessa öðlings virðingu á afmælisári hans.

 

Á sýningunni eru m.a. verk eftir Ragnar Kjartansson, Kjarval, Hafstein Austmann, Pál Guðmundsson frá Húsafelli, Þorvald Skúlason, Kristján Davíðsson, Jóhann Briem, Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Sérstök áhersla er á verk Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, bróður Hallsteins, en veigamikill þáttur í hugsjón hans var að miðla verkum Ásmundar í Borgarfjörðinn og átti hann m.a. stóran þátt í að verkið Sonatorrek var sett upp við Borg á Mýrum árið 1985.

 

Sýnngin verður opin alla virka daga frá 13-18 og á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi.

Categories:

Tags:

Comments are closed