Sagnakvöld Safnahúss verður haldið þriðjudaginn 20. nóvember, þar verður lesið upp úr tveimur nýjum bókum og spjallað um vísur.

 

Tveir höfundar lesa þar úr bókum sínum, þeir Ólafur Steinþórsson sem les upp úr bók sinni Urðarmána og Böðvar Guðmundsson sem les úr Töfrahöllinni, nýrri skáldsögu sinni. Einnig verða bækurnar tvær til sölu á sérstöku útgáfutilboði á staðnum og höfundar tilbúnir til að árita. Á dagskránni er einnig óformlegt vísnaspjall þar sem þrír af þekktustu hagyrðingum Borgarfjarðar koma við sögu. 

Sagnakvöld Safnahúss hafa nú verið haldin í nokkur ár við miklar vinsældir. Þar er fjallað um bækur sem tengjast Borgarfirði og nágrenni auk annarra bókmenntatengdra dagskrárliða. Ólafur Steinþórsson var búsettur í Borgarnesi í fjöldamörg ár en fluttist til Reykjavíkur árið 2005. Hann ólst upp í Breiðafirði sem er vettvangur Urðarmána eins og fyrri bókar hans sem hét Ferð til fortíðar og kom út árið 1995. Böðvar Guðmundsson hefur sent frá sér fjölda bóka, bæði ljóð og sögur. Hann er fæddur og uppalinn á Kirkjubóli í Hvítársíðu en er búsettur í Danmörku. Bók hans að þessu sinni er skáldsaga þar sem sérkennilegt lífshlaup Jóseps Malmholms er rakið og stórskemmtilegar söguhetjur stíga á svið.

Báðar bækurnar eru gefnar út af Uppheimum. Auk Ólafs og Böðvars mæta að þessu sinni þrír þekktir borgfirskir hagyrðingar í Safnahús og spjalla um vísur og sögur þeim tengdar, það eru þau Dagbjartur Dagbjartsson, Helgi Björnsson og Þórdís Sigurbjörnsdóttir.

Fólk er boðið velkomið til að njóta góðar sagnastundar í Safnahúsi þriðjudaginn. Dagskráin hefst kl. 20.00 og er að venju á neðri hæð Safnahúss, í sal sýningarinnar Börn í 100 ár.

 

Myndin er tekin í spjalli að lokinni dagskrá Sagnakvöldins í fyrra. Frá vinstri: Unnsteinn Arason, Þorkell Fjeldsted og Jón Blöndal.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed