Hertar sóttvarnarreglur hafa nú tekið gildi og mega ekki fleiri 20 manns koma saman í einu. Undanskilin eru börn fædd 2005 og síðar.
Við biðjum gesti okkar um að spritta hendur við komu og hafa 1 m fjarlægðar regluna í huga. Í Safnahúsi er gott rými, snerti fletir þrifnir og sprittaðir, bækur hreinsaðar eftir útlán o.s.frv.
Nokkrum viðburðum sem vera áttu í október hefur verið frestað, en vonast er til að geta boðið upp á þá í nóvembermánuði. Við biðjum fólk um að fylgjast með hér og á Facebook síðu okkar
Sjá má ennfremur tilkynningu Borgarbyggðar á heimasíðu sinni með því að smella hér.
Á tímum sem þessum er mikilvægt að geta notið menningar og við hvetjum fólk til að nýta sér það sem boðið er upp á í Safnahúsi.
Starfsfólk
Comments are closed