Síðasti dagur sýningar 19. ágúst 2022

Hennar voru spor í Safnahúsi Borgarfjarðar.

Sumar sýningin okkar Hennar voru spor rennur brátt sitt skeið og er loka dagur hennar föstudagurinn 19. ágúst n.k.

Á sýningunni gefur að líta muni úr safnkosti Byggðarsafnsins er snúa að handverki með megin áherslu á útsaum og textíl. Hugmyndin með sýningunni er að setja fram fallega og vandaða muni og um leið varpa ljósi á sögu handverksfólks héraðsins sem stendur að baki verkunum. Sýningarstjóri er Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann í Reykjavík.

Af þessu tilefni verður Katrín á staðnum milli kl. 17.00 og 18.00 og segir frá sýningunni og verkum hennar. Vinningshafi í útsaumsmiðagetrauninni verður opinberaður, en í verðlaun er útsaumssett frá Ömmu mús handavinnuhúsi.

Við hvetjum sem flesta að koma og njóta þessarar fallegu sýningar hjá okkur í Safnahúsinu og þiggja léttar veitingar á lokadegi sýningarinnar.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed