Nóg um að vera hjá okkur í Safnahúsinu núna þegar fer að hausta. Sumarsýningin okkar Spor eftir spor- Íslenski búningurinn líður senn undir lok og er síðasti sýningar dagur 9. september, við tekur sýning Vatnslitafélags Íslands Blæbrigði sem opnar 23. September.

 Hér fyrir neðan er hægt að sjá dagskrá haustsins og síðan verður hver og einn viðburður auglýstur sértaklega. Hlökkum til að sjá ykkur.

09. september kl. 14.00 – Guðrún Hildur Rosenkjær klæðskeri og sagnfræðingur heldur kynningu á búningum kvenna á 18. og 19. öls.

14. september kl. 17.00 – Kynning Sigurlaugar Dagsdóttur á vefnum Lifandi hefðir á Íslandi og verkefninu Sundhefð Íslendinga.

23. september kl. 14.00 – Opnun á sýningu Vatnslitafélags Íslands, Blæbrigði. Sýningin stendur til 21. október.

05. október kl. 17.00 – Helgi Bjarnason kynnir nýútkomna bók sína Gleymd skáld og gamlar sögur – Sagnaþættir úr Borgarfirði

06. október kl. 10.00 – Myndgreiningarmorgnar Héraðsskjalasafnsins byrja aftur

21. október kl. 12.00 – Prinsessu stund á bókasafinu á íslensku og úkraínsku.

08. nóvember kl. 17.00 – Spilastund með Spilavinum

 

Frítt er inn á alla viðburði Safnahúss

Tags:

Comments are closed