Á myndina vantar þrjá úr hópnum síðasta laugardag. Mynd:SIJ |
Eins og fram kemur í annarri nýlegri frétt er mikið líf í safnahúsi þessa dagana og fjölmargar gestir sem leggja leið sína í húsið. Til að mynda komu félagar úr kór Saurbæjarprestakalls ásamt mökum á sýninguna Börn í 100 ár síðastliðin laugardag. Að skoðun lokinni hélt hópurinn svo í Landnámssetur þar sem borðað var og farið á sýninguna Mr. Skallagrímsson.
Kór Saurbæjarprestakalls syngur við athafnir í þremur kirkjum í Hvalfjarðarsveit; Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju. Að auki heldur kórinn jafnan vortónleika og verða tónleikarnir í ár haldnir í Hallgrímskirkju í Saurbæ þann 30. maí næstkomandi. Stjórnandi kórsins og organisti við kirkjurnar er Örn Magnússon.
Kórmeðlimir lýstu yfir ánægju sinni með sýninguna í Safnahúsi og töluðu margir um að koma aftur og skoða hana betur sem hljóta að vera afar góð meðmæli með sýningunni.
Comments are closed