Tvær sýningar eru nú í gangi í Safnahúsi. annars  vegar er það sýningin Börn í 100 ár, sem er á neðri hæð hússins. Þar er opið frá 13-18 alla daga sumarsins. Sýningin þykir einstök í sinni röð og segir sögu Íslands á 20 öld úr frá sjónarhóli og umhverfi barna. Hún hentar jafnt fyrir Íslendinga sem erlenda ferðamenn og alla aldurshópa, ekki síst börn.  Börn í 100 ár er fastasýning Safnahúss og mun standa óbreytt næstu árin. Aðgangseyrir er kr. 600 fyrir fullorðna, en ókeypis er fyrir börn allt að 16 ára aldri. Afsláttur er fyrir eldri borgara, öryrkja og hópa.

 

Á efri hæð hússins er svo sýningin Kaupmannsheimilið, þar sem sagt er frá vandaðri og metnaðarfullri fjölskyldu sem var búsett í Borgarnesi á fyrri hluta 20. aldar.

Um er að ræða heimili Jóns Björnssonar frá Bæ og Helgu Maríu Björnsdóttur frá Svarfhóli. Þau hjónin áttu fjögur mannvænleg börn og urðu tvö þeirra þjóðþekktir einstaklingar. Sýningin er sett upp á íslensku en það fylgja henni bæklingar á ensku.

 

Sýningin um Kaupmannsheimilið er opin alla virka daga frá 13-18 og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Hún stendur til 12. nóvember 2010 og aðgangur er ókeypis.

Categories:

Tags:

Comments are closed