Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land og minnt á mikilvægi bókasafna auk þess sem þetta er dagur starfsfólks bókasafnanna.  Héraðsbókasafnið fékk góða heimsókn í morgun þegar elstu börnin á leikskólanum Klettaborg komu og fengu lánþegaskirteini hjá Sævari Inga Jónssyni héraðsbókaverði. Öðrum börnum á leikskólanum voru svo afhent skírteini sín á leikskólanum sjálfum síðar um daginn.  Er þetta gert í tilefni af Degi læsis sem einnig er í dag.  Af þessu tilefni var einnig birt útstilling á safninu á sögu glæpasagnaformsins á Íslandi undir yfirskrift dagsins, Lestur er bestur, hryllilega spennandi.  Eru allir hvattir til þess að líta við á bókasafninu í dag og það er að venju opið frá 13-18.

Mynd: GJ.

Categories:

Tags:

Comments are closed