Á morgun þann 14.apríl heldur Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi Bókasafnsdag.

Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Héraðsbókasafn Borgarfjarðar tekur að sjálfsögðu þátt í þessu sameiginlega átaki og af því tilefni útbjó starfsfólk Safnahúss glærusýningu þar sem sýnt er lítið brot af því fjölbreytilega og merkilega efni sem finna má á safninu, en aðsóknin hefur raunar verið mjög góð síðustu ár.  Fartölvu hefur verið komið fyrir við afgreiðsluborðið þar sem glærusýningin mun ganga þennan dag og jafnvel lengur.

 

Þá verða einnig hafður uppivið listi yfir 100 (reyndar 116 bækur) íslenskar bækur sem allir verða að lesa, en listinn er unninn af starfsfólki Amtsbókasafnsins á Akureyri með dyggri aðstoð starfsfólks á bókasöfnum landsins.  Að lokum verður má geta þess að þennan dag verður boðið uppá konfekt í Safnahúsi í tilefni dagsins.

 

Verið velkomin á bókasafnið! 

Lesa má meira um bókasafnsdaginn hér.

Categories:

Tags:

Comments are closed