Í tilefni af útkomu bókarinnar Sögur úr Síðunni eftir hinn landsfræga rithöfund Böðvar Guðmundsson frá Kirkjubóli í Hvítársíðu efnir Safnahús Borgarfjarðar til Kvöldvöku þann 4. nóvember kl. 20:30. Þar mun Böðvar lesa upp úr bókinni og spjalla við gesti. Jafnframt mun ungt fólk úr Hvítársíðu flytja fjölbreytt tónlistaratriði. Aðgangur er ókeypis. Eru Borgfirðingar hvattir til að fjölmenna á þennan menningarviðburð.
Undir tenglinum ,,Bókin” hér til hægri má fræðast meira um nýju bókina og rithöfundarferil Böðvars.
Comments are closed