Sá fjölhæfi lista- og handverksmaður Guðmundur Sigurðsson hefur opnað sýningu í Hallsteinssal í Safnahúsi og er fyrsti dagur hennar mánudagurinn 28. september.  Þar má sjá fjölbreytt verk eftir Guðmund sem margir þekkja sem fjölhæfan myndlistarmann en jafnframt fyrrverandi skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi. Guðmundur er á 85. aldursári og segir þetta verða sína síðustu sýningu  í Borgarnesi þar sem hann bjó í rúm fjörutíu ár.  Um list sína segir hann svo:

„Myndsköpun hefur verið mín helsta afþreying allt mitt æviskeið. Kveikjan að myndlistaráhuganum varð í barnæsku þegar ég bjó í sama húsi og hinn mæti myndlistarmaður Höskuldur Björnsson. Í dag er ég félagi í Grósku, myndlistarfélagi Garðabæjar og er það hvatning til að sinna listinni reglulega.“

Sýningin verður opin 13 til 18 alla virka daga auk þess sem listamaðurinn verður á sýningunni einhvern næstu laugardaga og verður tilkynnt um það síðar. Síðasti sýningardagur verður 26. október.