Safnahús auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar. Um er að ræða ýmis störf á söfnunum, s.s. sýningarvörslu, leiðsögn, afgreiðslu, flokkun gagna, skráningar, þrif og fleira. Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa góða tölvu- og tungumálakunnáttu, vera samviskusamur og hafa vandaða framkomu ásamt ríkri þjónustulund. Mikilvægt er einnig að eiga auðvelt með samskipti og geta veitt sýningaleiðsögn bæði á ensku og íslensku.  Önnur tungumál og almennur áhugi á bókmenntum og sögu er kostur.

Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknir óskast sendar á gudrunj@borgarbyggd.is fyrir 14. maí 2020.

Með umsókn þarf að fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og kynningarbréf þar sem gert er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.

Categories:

Tags:

Comments are closed