Síðast liðinn föstudag opnaði Steinunn Steinarsdóttir sýningu sína í Safnahúsinu og einnig hylltu Borgnesingar sauðkindina á laugardaginn og var sýningin “Börn í 100 ár” opin af því tilefni.
Töluvert af fólki lagði leið sína hingað á ferð sinni um bæinn og hafði vonandi gaman af.
Hæfileikar þessa unga listamanns vöktu almenna ánægju þeirra rúmlega 50 sýningargesta sem mættu á opnunina. Og þrátt fyrir krepputal, var sala á verkum ansi góð.
Ljósmynd: Steinunn Steinarsdóttir í sýningarsalnum. Ljósmyndari: Sigrún Elíasdóttir.
Comments are closed