Mynd: Elín Elísabet Einarsdóttir en hún teiknaði einnig mynd sumarlesturs 2008 |
Markmiðið með verkefninu er að: Nemendur viðhaldi og þjálfi ennfremur þá lestrarleikni sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.
Börn á þessum aldri skrá sig í sumarlesturinn á bókasafninu frá og með 5. júní og fá þá um leið skjal þar sem skráðar eru þær bækur sem viðkomandi barn les á ofangreindu tímabili. Þegar bók er aftur skilað er stimplað við hvern titil og nafn þátttakenda sett á miða í pott sem dregið verður úr í lok sumars þar sem einhverjir heppnir bókaormar hljóta vinning.
Öll börn geta gerst lánþegar Æskilegt er að þau yngstu komi í fylgd fullorðinna fyrstu skiptin.
Opið verður á bókasafninu í sumar alla virka daga frá kl. 13-18.
Þessa dagana standa yfir sérstakar kynningar á verkefninu á bókasafninu en öllum kennurum nemenda á þessum aldri í skólunum í nágrenninu var boðið að koma með bekki sína í heimsókn. Nú þegar hafa tveir bekkir grunnskólans í Borgarnesi komið í heimsókn og von er á öðrum tveim síðar í þessari viku. Í sömu heimsókn gefst einnig tækifæri á að líta á sýninguna vinsælu Börn í 100 ár á neðri hæð Safnahúss.
Comments are closed