Á myndina vantar þrjá úr hópnum síðasta laugardag. Mynd:SIJ

Eins og fram kemur í annarri nýlegri frétt er mikið líf í safnahúsi þessa dagana og fjölmargar gestir sem leggja leið sína í húsið.  Til að mynda komu  félagar úr kór Saurbæjarprestakalls ásamt mökum á sýninguna Börn í 100 ár síðastliðin laugardag.  Að skoðun lokinni hélt hópurinn svo í Landnámssetur þar sem borðað var og farið á sýninguna Mr. Skallagrímsson. 

Kór Saurbæjarprestakalls syngur við athafnir í þremur kirkjum í Hvalfjarðarsveit; Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju.  Að auki heldur kórinn jafnan vortónleika og verða tónleikarnir í ár haldnir í Hallgrímskirkju í Saurbæ þann 30. maí næstkomandi.  Stjórnandi kórsins og organisti við kirkjurnar er Örn Magnússon. 

Kórmeðlimir lýstu yfir ánægju sinni með sýninguna í Safnahúsi og töluðu margir um að koma aftur og skoða hana betur sem hljóta að vera afar góð meðmæli með sýningunni.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed