Laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00 verður opnuð ný sýning í Hallsteinssal, málverkasýning frístundamálarans Jóhönnu L. Jónsdóttur. Jóhanna var forstöðukona Listasetursins Kirkjuhvols á Akranesi í mörg ár og átti mikinn þátt í uppbyggingu þess. Hún er fædd á Akranesi 1951 og ólst þar upp. Hún tók meistarapróf í hárgreiðslu eftir hefðbundna skólagöngu og vann við það lengi en snéri sér síðan að gluggaútstillingum, með öðrum störfum, ásamt því að myndskreyta veggflísar fyrir flísaverslanir. Hún nam flísamálun hjá Tessera Designs í London á árunum 1986-1995 og stundaði nám við Myndlistaskóla Mosfellsbæjar árið 2010. 

Þetta er fjórða einkasýning Jóhönnu, en hún hefur auk þess tekið þátt í tveim samsýningum.  

 

Allir eru velkomnir á opnun sýningarinnar, sem stendur til 11. mars.  Opið er til kl. 17.00 á opnunardaginn og eftir það á 13.00 – 18.00 alla virka daga. Ókeypis aðgangur verður á sýninguna.

 

Categories:

Tags:

Comments are closed