Sýningaropnun Áslaugar Þorvaldsdóttur sem vera átti laugardaginn 28. apríl næstkomandi hefur af óviðráðanlegum ástæðum verið frestað til laugardagsins 5. maí kl. 13.00.
Á sýningunni sýnir hún ljósmyndir og Sigríður Kr. Gísladóttir sýnir hækur (japanskt ljóðform) sem hún hefur gert með innblæstri frá myndum Áslaugar.
Á opnunardaginn verður opið til 17 eins og alla daga sumarsins (sýningar opnar 13-17) og listakonurnar verða á svæðinu fyrstu tvo tímana.
Fjölmargir viðburðir verða í Safnahúsi á árinu og er sýning Áslaugar einn þeirra. Sýningin stendur í allt sumar eða til 25. ágúst. Hér má sjá viðburðaskrána í heild sinni.
Comments are closed