Næstkomandi laugardag kl. 15.00 býður Borgarbyggð til afmælishátíðar Borgarness í Hjálmakletti. Einnig verða aðrir dagskrárliðir þennan dag sem sjá má nánar um á www.borgarbyggd.is.
Er tilefnið 150 ára afmæli Borgarness, en miðað er við árið sem staðnum var veitt verslunarleyfi sem var vorið 1867.
Á laugardaginn kemur má því reikna með að brottfluttir Borgnesingar og aðrir velunnarar bæjarins verði á ferðinni. Því verður Borgarnessýning Safnahúss, Tíminn gegnum linsuna opin þennan dag kl. 13.00 – 14.45 sem undanfari að afmælishátíðinni.
Er vonast til að margir leggi leið sína í Borgarnes til að fagna þessum tímamótum. Þess má einnig geta að frá 1. maí tekur við sumaropnun í Safnahúsi þar sem sýningar verða opnar alla daga kl. 13.00 – 17.00, gildir það fram til 1. september að vetraropnun tekur við aftur.
Comments are closed