Safnahús tekur þátt í dagskrá Aðventurölts í Borgarnesi þann 6. desember næstkomandi. Aukaopnun verður frá 18.00 - 23.00 þetta kvöld, bókasafnið verður opið með fullri þjónustu,
ókeypis verður á sýningar og heitt súkkulaði og piparkökur verða á boðstólum. Tímasett dagskrá er sem hér segir:
18.00 Nemendur Tónlistarskólans leika.
20.00 Helena Guttormsdóttir myndlistarkona
veitir leiðsögn um sýninguna um Hallstein.
22.00 Sagt frá sérstökum safngripum og skjölum (Guðrún Jónsdóttir og Jóhanna Skúladóttir).
Verið velkomin!