Í fimmta sinn er efnt til til sumarlesturs í Safnahúsi. Sumarlesturinn er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og tímabilið er frá 10. júní - 10. ágúst. Markmiðið er að nemendur viðhaldi og þjálfi lestrarleiknina sem þeir hafa tileinkað sér í skólunum yfir veturinn.  Verkefnið er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu.  Í ágúst verður svo haldin uppskeruhátíð sumarlestursins, en þá koma krakkarnir í Safnahús til leiks og skemmtunar og þiggja viðurkenningar og hressingu.