Mynd: www.leikskald.is
Í dag eru 80 ár liðinn frá fæðingu hins ástsæla leikara Flosa Ólafssonar en hann lést sem kunnugt er í lok síðustu viku.
Flosi ólst upp í Reykjavík og bjó þar þangað til hann flutti ásamt konu sinni, Lilju Margeirsdóttur, í Reykholtsdal í Borgarfirði fyrir hartnær 20 árum.
Til gamans má geta þess að í ljóðabókinni Borgfirðingaljóð, sem geymir safn ljóða eftir borgfirska höfunda og var útgefin af Hörpuútgáfunni árið 1991, birtist ljóð eftir hinn þekkta rithöfund Jónas Árnason sem bjó einnig í Reykholtsdalnum, um búferlaflutning Flosa, ljóðið heitir Haust og hefur undirtitilinn- Flosi Ólafsson flutti í Reykholtsdal.
Norðan frá heimskauti yfir oss dimmuna dregur
veturinn kaldur og argur og ófrýnilegur.
---
Skýbólstrar þéttast og þröngva sér niður með Oki
landgolan blíða er orðin að andskotans roki.
---
Blóm eru fölnuð og fokin sem hvert annað glingur,
beljurnar leika ekki lengur við hvurn sinn fingur.
---
Oss finnst þó bændunum sumum að bættur sé skaðinn,
lóan er farin, en Flosi er kominn í staðinn.
(Borgfirðingaljóð bls: 178)
Hér verður ferill Flosa rakinn í stuttu máli.