|
Stór hluti þátttakenda í sumarlestri 2009 |
Í sumar hafa duglegir krakkar á aldrinum 6-12 ára tekið þátt í sumarlestri á bókasafninu en þetta er í annað sinn sem Safnahúsið stendur fyrir verkefninu. Í ár tóku 30 börn þátt og lásu þau ríflega 150 bækur. Verkefninu lauk formlega í gær þegar haldin var sérstök uppskeruhátíð í Safnahúsinu sem heppnaðist með miklum ágætum.