Nú í nóvember eru liðin 110 ár frá fæðingu Magnúsar Ásgeirssonar þýðanda og rithöfundar. Safnahús minnist hans af þessu tilefni með því að stilla upp nokkrum ljóðum hans og þýðingum auk fróðleiks um skáldið á veggspjaldi. Magnús var fæddur á Reykjum í Lundarreykjadal 9. nóv. 1901. 

 

Hann lauk gagnfræðaskólaprófi utan skóla árið 1920 og stúdentsprófi tveim árum síðar.  Hann innritaðist í norrænudeild Háskólans en hvarf frá námi eftir nokkur misseri og vann fyrir sér sem blaðamaður og þingskrifari.

 

Frá 1941 til æviloka gegndi Magnús fastri stöðu bókavarðar við Bókasafn Hafnarfjarðar. Hann var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Anna Ólafsdóttir og eignuðust þau þrjár dætur, síðari kona hans var Anna Guðmundsdóttir, dóttir Guðmundar Björnssonar sýslumanns í Borgarnesi og  Þóru Leopoldínu Júlíusdóttur. Magnús og Anna Guðmundsdóttir eignuðust eina dóttur.

 

Aðeins 22 ára sendi Magnús frá sér sína fyrstu ljóðabók og raunar þá einu sem geymdi frumort ljóð. Hún bar heitið Síðkveld en þar mátti einnig finna nokkrar ljóðaþýðingar. Skemmst er frá því að segja að hann lagði þýðingar fyrir sig og þýddi vel yfir 300 hundruð ljóð á sinni ævi. Með þýðingum sínum á mörgum af þekktustu ljóðskáldum heimsins opnaði Magnús dyrnar  fyrir yngri skáld og hafði mikil áhrif á þau og kvæðaunnendur alla.

 

Þýdd ljóð komu út í sex bindum á árunum 1928-1941 og Meðan sprengjurnar kalla árið 1945 en sú bók hefur að geyma ljóðaþýðingar úr norsku og sænsku.  Að Magnúsi látnum kom út bókin Síðustu þýdd ljóð sem Guðmundur Böðvarsson bjó til prentunar en bókin var gefin út 9.nóvember 1961 en þann dag hefði Magnús orðið sextugur.

 

Að auki þýddi Magnús ýmis verk í óbundnu máli, t.d eftir eftir Gunnar Gunnarsson, Leo Tolstoj og Agust Strindberg. Þá eru ótalin ýmis störf að bókmenntum önnur.

 

Magnús varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði 30. júlí 1955 aðeins 53 ára að aldri.

 

 

 

 

Categories:

Tags:

Comments are closed