Eins og margir hafa eflaust orðið varir við er nú hafin endurbygging svokallaðra Hlíðartúnshúsa í Borgarnesi. Hlíðartúnshúsin eru gömul útihús sem standa á holtinu vestan við Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og hafa verið aðdráttarafl fyrir ferðamenn undanfarna áratugi. Fyrst og fremst eru þau minjar um búsetumótun í Borgarnesi þar sem þeir íbúar sem ekki voru verslunarmenn voru bændur og fluttu búskap sinn að hluta með sér inn í þéttbýlið.

Lágmarksstyrkur fékkst frá Húsafriðunarsjóði til að hefja endurgerð húsanna í ár, en stefnt er að því að ljúka því í áföngum á næstu árum. Verkið byrjaði með uppmælingu og niðurrifi verst förnu húsanna í ágúst s.l., en verður svo haldið áfram með endurhleðslu veggja eins hlutans á næstu vikum og mun Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari annast það verk. Það er Safnahús Borgarfjarðar sem hefur haft frumkvæði að þessu verkefni í samvinnu við framkvæmdasvið Borgarbyggðar sem hefur alla umsjón með framkvæmdum.

 

Þess má einnig geta að heimildasöfnun um búskap í Borgarnesi á upphafsáratugum byggðar þar verður hluti af húsakönnun sem framkvæmdasvið lætur vinna á næstu mánuðum og er það verkefni einnig styrkt af Húsaverndunarsjóði. Heimildir þessar verða m.a. hluti af skipulagskerfi bæjarins þar sem grjótgarðar og aðrar minjar verða staðsettar með GPS punktum og merktar inn á skipulagsuppdrætti. Þannig er komið í veg fyrir að þessar minjar eyðileggist að óþörfu.

 

Ljósmynd með frétt: Guðrún Jónsdóttir

 

Categories:

Tags:

Comments are closed